Við fengum góða gesti í heimsókn til okkar í FVA þegar 140 nemendur úr 10. bekkjum Grundaskóla, Brekkubæjarskóla og Heiðarskóla kíktu til okkar. Nemendur fengu kynningu á námsframboði hjá deildarstjórum, nemendafélagið kynnti starfsemi sína og bauð nemendum að freista gæfunnar á lukkuhjóli. Nemendur fengu einnig kynningu á húsnæði skólans, mötuneytið bauð upp á pizzu og drykki og að lokum voru öll leyst út með gjöf frá skólanum. Virkilega vel heppnað og skemmtilegt.
Kærar þakkir fyrir komuna, við hlökkum til að kynnast ykkur betur í haust!














