fbpx

Í dag er dimmision í FVA en þetta framandi orð er komið úr latínu og merkir að senda burt. Útskriftarefni kveðja nú kennara sína og starfsfólk skólans, með trega og tárum, og halda svo burt á vit nýrra ævintýra.

Skólinn bauð til morgunverðar kl 8 í salnum og í samverunni rifjaði skólameistari upp covid-tímann haustið 2020 þegar þessi hópur hóf nám í FVA með grímu og sprittbrúsann við höndina. Með seiglu og úthaldi og stuðningi okkar góðu kennara standa þessir nemendur nú á barmi útskriftar, bara lokaspretturinn eftir.

Gangi ykkur vel, til hamingju með daginn og góða skemmtun á lokaballinu í kvöld á GK. Verið Fjölbraut áfram til sóma!