Miðvikudaginn 9. apríl fékk tréiðnaðardeildin áhugaverða heimsókn frá Hegas.
Kynningin var um Lamello samsetningarbúnaðinn, en eins og flestir vita þá er Lamello fyrirtæki sem sérhæfir sig í samsetningar búnaði fyrir innréttingar og húsgögn ásamt handvélum til að fræsa fyrir því.
Lamello er einstakt fyrirtæki á sínu sviði og er með mjög fjölhæfar lausnir til samsetninga. Nemendur fengu kynningu frá svíanum Andreas Wilsander er sem sérfræðingur frá Lamello, hann kynnti fyrir nemendum og kennurum nýungar í samsetningu innréttinga. Mjög áhugavert fyrir alla nemendur í tréiðnaðardeildinni!


