Nú renna upp síðustu dagar innritunar nýnema í framhaldsskóla. Tekið er á móti umsóknum í gegnum https://island.is/umsokn-um-framhaldsskola. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní.

Allar upplýsingar um FVA – fjölbreytt námið, fjörið og félagslífið – hjá náms-og starfsráðgjöfum og áfangastjóra þessa dagana.

Á myndinni eru útskriftarefnin vorið 2025, heldur betur sátt!