Innritun nýrra nemenda í skólann er lokið og svarbréf verið send út. Aðsókn að skólanum var góð sem fyrr, alls  hafa 169 nemendur fengið boð um skólavist þar af 133 sem luku 10.bekk í vor.

Greiðsluseðlar vegna skólagjalda næstu annar verða sendir út eftir helgina. 

Hér fyrir neðan má sjá svarbréf sem send voru nýnemum í dag. 

Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa og opnar aftur þriðjudaginn 5. ágúst kl. 10. 

Gleðilegt sumar!

Ágæti nemandi
Þú hefur fengið skólavist í Fjölbrautaskóla Vesturlands á haustönn 2025.

Allir nemendur í dagskóla greiða innritunargjald sem er 6.000 krónur á önn. Gjald fyrir aðgang að tölvuneti skólans er 6.000 krónur á önn. Æskilegt er að nemendur taki þátt í starfi nemendafélagsins og greiði félagsgjald sem er 5.500 krónur.
Greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka nemenda eða forráðamanna þeirra. Með því að greiða fyrir lok eindaga, 11. júlí nk, staðfestir þú skólavist í FVA. Ef innritunargjald og gjald fyrir aðgang að tölvuneti er ekki greitt fyrir þann tíma er litið svo á að þú ætlir ekki að þiggja skólavist.


Mælst er til þess að nemandi í bóknámi hafi með sér tölvu til að nota í náminu (helst PC) og nemendur á Rafvirkjabraut þurfa tölvu með a.m.k. 16GB RAM. Til að fá aðgang að INNU, tölvukerfi framhaldsskólanna, þarftu að hafa rafræn skilríki. Þú færð rafræn skilríki í banka.


Í skólanum er öflug stoðþjónusta, hér starfa tveir náms- og starfsráðgjafar, skólahjúkrunarfræðingur og sálfræðingur. Hlutverk þeirra er fyrst og fremst að vera málsvari og trúnaðarmaður nemenda innan skólans og standa vörð um velferð þeirra. Hægt er að bóka ráðgjöf hjá þeim á heimasíðu skólans og velkomið að senda þeim fyrirspurn sem verður svarað strax eftir sumarleyfi.


Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 23. júní nk. vegna sumarleyfa og opnar aftur þriðjudaginn 5. ágúst nk. kl. 10. Þau sem eiga brýn erindi meðan skrifstofan er lokuð geta haft samband við Steinunni Ingu Óttarsdóttur skólameistara eða Dröfn Viðarsdóttur aðstoðarskólameistara með tölvupósti á netföngin steinunn@fva.is og drofn@fva.is.


Skólinn verður settur föstudaginn 15. ágúst kl. 10. Nýnemar sem luku grunnskóla nú í vor eiga að mæta á skólasetninguna. Aðrir nemendur eru einnig velkomnir sem og foreldrar og forráðamenn. Að skólasetningu lokinni verður dagskrá fyrir nýnema sem luku tíunda bekk í vor á vegum NFFA. Dagskránni lýkur um klukkan 14.


Kennsla á haustönn 2025 hefst skv. stundaskrá mánudaginn 18. ágúst.


Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans.