Föstudaginn 15. ágúst er kynning fyrir nýnema í FVA en þá koma nýir nemendur (árg. 2009) i skólann.
Alls eru 125 nýnemar skráðir í skólann og við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur. Pizza í hádeginu í boði skólans.
Nýnemar, ekki plana neitt annað frá kl 10-12 þann 15. ágúst!
Nýnemar á heimavist: Fundur í Salnum kl 14 með vistarstjóra og forráðamönnum! Þar verða m.a. lyklar að herbergjum afhentir og farið yfir helstu heimavistarreglur.
Þann 15. ágúst fá allir nýnemar sem hafa greitt skólagjöldin sendar upplýsingar um skólanetfang og aðgang að Menntaskýi (Microsoft Office365) og innra neti skólans.
Allir nemendur koma með tölvur með sér í skólann. Æskilegast er að vera með PC tölvu þar sem þær falla betur að kerfinu okkar heldur en Mac. Á bókasafni er tölvuþjónusta þar sem hægt er að fá aðstoð, einnig er hægt að senda póst í hjalp@fva.is.
Sjáumst á föstudaginn, kæru nýnemar!
