Vika 6, sjötta vika hvers árs, er árlegur viðburður þar sem skólasamfélagið er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu. Þema vikunnar í ár er öryggi og ofbeldi. Jafnréttisfélagið Bríet, í samvinnu við Góðgerðarfélagið Eynir (Gey) stendur yrir metnaðarfullri dagskrá alla vikuna þar sem meðal annars er boðið upp á bíókvöld, Blush bingó til styrktar Bjarkarhlíð og Kahoot keppni á sal skólans.
