Opnir dagar hófust i dag með afar fróðlegum fyrirlestri Ragnars Olgeirssonar / Jóels Sæmundssonar um framtíðina…
Dagskrá næstu daga:
- Mánudagur 16. febrúar: Hefðbundin kennsla fyrir hádegi. Opnir dagar hefjast svo formlega eftir hádegi.
- Þriðjudagur 17. febrúar: Opnir dagar allan daginn.
- Miðvikudagur 18. febrúar: Opnir dagar fram að hádegi.
Hefðbundin kennsla niður á meðan á þessu stendur. Þess í stað er boðið upp á fjölbreytta viðburði. Nemendur eiga að safna fjórum punktum samtals með því að skrá sig og mæta á viðburði dagsins. Dagskráin er orðin virkilega glæsileg, sjá í INNU. Við ætlum að hafa gaman á Opnum dögum! Meðal þess sem við ætlum að gera er að baka, spila, teikna, horfa á myndir, prjóna og hekla, fara í tetris eða paintball. gönguferð, skautaferð, menningarferð o.m.fl.
Í lok Opinna daga, þ.e. miðvikudagskvöldið 18. febrúar nk, er árshátíð NFFA haldin með pompi og pragt í Golfskálanum, frá kl 17.30 (húsið opnar) -ca 20.
Ballið er í sal FVA. Húsið opnar kl 21 og lokar 21.30. Ekki er hleypt inn eftir lokun.
Ölvun ógildir miðann. Skólareglur gilda og viðurlög við brotum á þeim.
Takk nágrannar fyrir að umbera óminn af danstónlistinni!
Böllin í FVA hafa alltaf farið vel fram og umgengni hefur verið til fyrirmyndar. Takk fyrir það öll! Við viljum vera alls staðar til sóma!
