Það hefur verið líf og fjör í skólanum og víðar undanfarna daga á opnum dögum. Dagskráin var fjölbreytt, lífleg og skemmtileg eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.
Fimmtudaginn 19. febrúar er miðannarmat, opnað verður fyrir niðurstöður matsins að morgni þriðjudagsins 24. febrúar.
Föstudaginn 20. og mánudaginn 23. febrúar er vorfrí í skólanum.
Við vonum að öll njóti vel yfir helgina og mæti fersk og úthvíld þriðjudaginn 24. febrúar.












