Hópur hressra nemenda í vélvirkjun kíkti í heimsókn í Grundartanga nýverið. Norðurál tók vel á móti hópnum og bauð upp á áhugaverða fræðslu um álframleiðslu og skoðunarferð um verksmiðjuna. Það var virkilega hvetjandi fyrir nemendur að sjá vélbúnaðinn ´í aksjón´ og átta sig á stærðargráðunni í þessum iðnaði.

Til að kóróna góðan dag var boðið upp á pizzur í lokin.

Kærar þakkir fyrir okkur!