Leiklistarklúbburinn Melló frumsýndi sl. föstudag söngleikinn Hvar er draumurinn? eftir Höskuld Þór Jónsson. Söguþráðurinn er saminn út frá vinsælum lögum Sálarinnar hans Jóns míns og snýst um saklausa ást, sanna vináttu, að gefast ekki upp en láta draumana rætast.
Leikstjóri sýningarinnar er Einar Viðarsson, dansstjóri er Sandra Ómarsdóttir og söngþjálfun er í höndum Elfu M. Ingvadóttur. Saman tókst þeim enn og aftur að virkja stóran hóp ungmenna og draga fram hæfileika þeirra, sem nóg virðist vera af.
Að setja upp söngleik með 50-60 manns er risaverkefni, með æfingum, hljóði, búningum, hári og förðun, ljósum, sviðsmynd, markaðsmálum og mörgu fleiru. Það er heldur betur í mörg horn að líta, að ógleymdu náminu, því þarf að sinna líka. Formenn Melló, þær Íris Embla og Hulda Þórunn, héldu vel utan um hópinn og verkefnið með Lilju, félagslífsfulltrúa skólans, eins og klett sér við hlið.
Við erum gríðarlega stolt af nemendum okkar og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg að gera sýninguna jafn glæsilega og raun ber vitni. Afraksturinn er kraftmikil og stórskemmtileg sýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Innilega til hamingju!