Erasmus verkefnið okkar WIFII (Widen Interaction for Innovative Inclusion) er komið á fullt skrið á ný. Að þessu sinni eru Helena Valtýsdóttir og Kristín Kötterheinrich staddar í Tourcoing í Frakklandi ásamt fimm nemendum FVA. Viðfangsefnið í þessari ferð er Intergenerational Link – samskipti kynslóðanna. Nemendur okkar voru með kynningu í gær og stóðu þau sig virkilega vel. Framundan hjá þeim er meðal annars fjölbreytt verkefnavinna og dagsferð til Parísar.