Nemendur í íslensku fóru, ásamt kennurum sínum, í Borgarleikhúsið að sjá Niflungahringinn allan í útfærslu Hunds í óskilum. Sýningin er byggð á óperum Richards Wagners, þar sem hann vinnur með germanska menningararfinn og leitar meðal annars fanga í Snorra-Eddu sem nemendur í íslensku eru einmitt að lesa.

Nemendur voru sáttir með útkomuna og voru skólanum til sóma sem endranær.