Veðurspáin á morgun er ekki góð, það eru appelsínugular viðvaranir á svæðinu. Veðrið verður verst hér á Skaga um hádegið en gengur svo niður og miðað við spána þarf EKKI að fella niður kennslu almennt. Mögulega komast sumir kennarar ekki frá höfuðborgarsvæðinu og komi sú staða upp, fá nemendur fyrirmæli frá kennara í INNU um hvernig tímanum verður best varið í viðkomandi áfanga. Kennari ber ábyrgð á að setja tilkynningu inn á Innu og nemendur bera ábyrgð á að fylgjast með!
