Angela okkar, myndlistarkona og kennari, sigraði í jafnréttiskeppni KÍ (JAKI) á framhaldsskólastigi ásamt sínum frábæru nemendum! Viðurkenningin er fyrir kennsluverkefnið Nemendur sem aðgerðarsinnar- nemendamiðuð listrannsókn sem kennsluaðferð í jafnréttismálum.
Jafnréttisnefnd KÍ boðaði til samkeppni um jafnréttisverkefni sem notuð hafa verið í kennslu í skólum hér á landi. Samkeppnin náði til allra skólastiga og gátu jafnréttisverkefnin verið allt frá þemaverkefnum heilla skóla eða árganga til verkefna einstakra kennara fyrir bekki eða afmarkaðan hóp nemenda. Verkefni þurftu að rúmast undir hatti alhliða jafnréttis og grunnþættinum jafnrétti.
Í umsögn dómnefndar kom m.a. fram að verkefni Angelu hafi skorið sig sérstaklega úr fyrir metnaðarfulla og samfélagslega tengda nálgun. Dómnefnd taldi verkefnið einnig sterkt dæmi um hvernig skólastarf getur hvatt ungt fólk til virkrar þátttöku í baráttunni fyrir jafnrétti.
Þessa dagana er svo dómnefnd innan skólans að störfum, að velja hvaða verkefni áfangans fá sérstök verðlaun frá skólanum.
