Í kjölfarið af Jafnréttiskeppni KÍ, sem Angela okkar var verðlaunuð fyrir, var ákveðið að efna til innanhúskeppni í jafnréttisverkefnum nemenda. Átta dómarar úr röðum starfsfólks við skólann voru fengnir til að leggja mat á fjögur verkefni sem kepptu til úrslita. Verkefni dómnefndar var ekki einfalt, enda gríðarlega metnaðarfull og fjölbreytt verkefni um að ræða.


Niðurstaða dómnefndar var að ljósmyndaserían Heimþrá bar sigur úr býtum. Í umsögn dómnefndar kom fram að nálgun verkefnisins hafi verið áhrifarík og öðruvísi og tenging við jafnréttið mjög sterkt. Sterk listræn útfærsla sem fær fólk til að hugsa.
Í öðru sæti var Snákaspilið – fæðingarorlofsútgáfa. Dómnefnd fannst spilið vera vel útfært og fara með spilara beint í kerfi fæðingarorlofs, þroskað verkefni með skýrt jafnréttisgildi.
Í þriðja sæti var Litla bókin um stóra jafnréttið. Dásamlega falleg bók að mati dómnefndar, sem sendir skýr skilaboð á einföldum nótum sem börn skilja.
Skólablaðið Skamm fékk sérstök verðlaun fyrir einstaklega flott framtak í þágu skólans. Virkilega metnaðarfullt verkefni, kærkomin viðbót og góð tilbreyting frá samfélagsmiðlum.


Jafnrétti er sífellt baráttumál sem Angela hefur af krafti og eldmóði gert að stórum og lærdómsríkum listviðburði hér í skólanum og hrifið nemendur með sér. Glæsilegur árangur!
Innilega til hamingju öllsömul!