Í dag er dimmision í FVA þegar útskriftarefni kveðja kennara sína og starfsfólk skólans áður en þau halda á vit nýrra ævintýra.
Skólinn bauð til morgunverðar í salnum og síðan leysti hópurinn ýmsar þrautir um skólann í liðakeppni. Að því loknu var förinni heitið til Reykjavíkur í glens og gaman.
Til hamingju með daginn og góða skemmtun á lokaballinu í kvöld!

Svo er það lokaspretturinn fram að brautskráningu, sem verður föstudaginn 29. maí kl. 14.00