Hefð hefur skapast fyrir því að útskriftarnemar gróðursetji tré á hverju vori. Í ár vildi svo skemmtilega til að gróðursetningin bar upp á Degi jarðar, sem haldinn er 22. apríl ár hvert.
Útskriftarnemar, ásamt kennara sínum Helenu Valtýsdóttur og félögum úr Skógræktarfélagi Akraness gróðursettu tré rétt við hringtorgið inn í bæinn. En Skógræktarfélag Akraness er einmitt að rækta upp skjólbelti á þeim stað.
Okkar frábæru útskriftarnemendur gengu rösklega til verks og komu plöntunum hratt og örugglega niður.












