Hin árlega stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi sem FVA stendur fyrir, fór fram 17. apríl sl og tóku 114 nemendur þátt.  Sigríður Ragnarsdóttir, deildarstjóri stærðfræðideildar FVA sér um skipulagningu og framkvæmd keppninnar ásamt stærðfræðikennurum skólans.   

Keppendur komu frá sex skólum á Vesturlandi. Laugardaginn 9. maí voru veittar viðurkenningar í sal FVA fyrir fyrstu 10 sætin í 8. 9. og 10. bekk og einnig voru veitt peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Það er Norðurál sem gefur verðlaunaféð og styrkir þannig framtak FVA myndarlega.

Aðstandendur keppninnar þakka öllum keppendum fyrir þátttökuna, kennurum og Norðuráli fyrir þeirra framlag.

Úrslitin voru sem hér segir:

8. bekkur

1. sæti – Daði Rafn Reynisson úr Grundaskóla á Akranesi

2. sæti – Ísarr Myrkvi Runólfsson úr Grundaskóla á Akranesi

3. sæti – Katla Lind Björnsdóttir úr Brekkubæjarskóla á Akranesi

9. bekkur

1. sæti – Einar Orri Brandsson úr Grundaskóla á Akranesi

2. sæti – Ferdinand August Knappe úr Grunnskólanum í Borgarnesi

3. sæti – Sigfús Björn Jónsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi

10. bekkur

1. sæti – Tómas Pálmi Freysson úr Brekkubæjarskóla á Akranesi

2. sæti – Kristján Mar Traustason úr Grunnskólanum í Snæfellsbæja

3. sæti – Heiðar Smári Ísgeirsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi