SKÓLAHJÚKRUN
SKÓLAHJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Í FVA starfar hjúkrunarfræðingur í 50% starfshlufalli.
Skólahjúkrunarfræðingur FVA heitir Íris Björg Jónsdóttir og er hún með sérmenntun í geðhjúkrun og starfar, að auki við FVA, á heilsugæslu HVE Akranesi.
Viðvera skólahjúkrunarfræðings í FVA
- Mánudaga kl. 8:30 – 12
- Þriðjudaga kl. 8:30 – 16
- Fimmtudaga kl. 8:30 – 16
Best er að panta viðtalstíma á heimasíðu FVA en einnig er velkomið að senda fyrirspurn á iris@fva.is eða hafa samband í síma 433-2525.
Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:
- Meiðsli, sjúkdóma og verki
- Tilfinningaleg og geðræn vandamál
- Svefnvandamál
- Vottorð
- Áfengis- og/eða fíkniefnaneyslu
- Kynheilbrigði
- Sjálfsmynd og líkamsímynd
- Mataræði og hreyfing
Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu
Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur
- sinna starfi forvarnarfulltrúa skólans og vinna að forvörnum
- Tengill nemenda með langvarandi heilsufarsvandamál
- vera með fræðslu í skólanum sem tengist heilbrigðismálum
- vera innanhandar með ráðgjöf til kennara og starfsfólks
- sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
- finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda