Útskriftarnemar á rafiðnaðarbraut gerðu góða ferð í Borgarnes þar sem þeir heimsóttu Rarik. Nemendur fengu að kynnast sögu Rarik og starfsemi þess og fengu útskýringar á búnaði og verkfærum sem fylgja starfseminni. Þau sem vildu fengu að klifra upp rafmagnsstaur í svokölluðum stauraskóm. Að lokum var boðið til dýrindis pizzaveislu.

Kærar þakkir fyrir móttökurnar Rarik.