Föstudaginn nk. verður málstofa sjúkraliðanema, þar sem 14 útskriftarnemar kynna lokaverkefni sín. Lokaverkefnin eru fjölbreytt og spennandi, allt frá því að fjalla um hvernig dýr geta hjálpað til í hjúkrun, Alzheimersjúkdóminn, geðhelbrigði og fíkn aldraðra.
Á sjúkraliðabraut er boðið upp á 203 eininga dreifnám, s.s. fjarnám með staðbundnum lotum. Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Tilgangur námsins er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir. Í náminu er rík áhersla lögð á samvinnu við starfsfólk og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Auk þess getur sjúkraliðanámið verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum.
Innritun í sjúkraliðanám hefst um áramótin.
