MÍN FRAMTÍÐ er bæði Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning sem er haldin í Laugardalshöll, 16.-18. mars. FVA er með glæsilegan bás á svæðinu, Unnur Jónsdóttir hannaði kynningarefni fyrir okkur og við stöndum vaktina þessa daga ásamt nokkrum nemendum.
Hefð er fyrir að keppa í iðngreinum á mótinu. Tveir nemendur keppa fyrir hönd FVA að þessu sinni, þau Anna Lilja og Bergur Breki, nemendur í rafvirkjun. Við óskum þeim góðs gengis.
Verið velkomin í Laugardalinn!
![](https://fva.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-09-at-13.03.28-1024x610.png)