Skagamönnum á öllum aldri er boðið að hittast í FVA laugardaginn 10. október í samtali um: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Verður efnt til slíks samtals um allt land. Nemendur leiða samtölin en öllum kynslóðum er boðið að taka þátt, hlusta á ólík sjónarmið og ræða hvað hvert okkar getur lagt af mörkum til mótunar framtíðarinnar.  Hér er hægt að skrá sig til þátttöku: https://talasaman.is/skra. Einnig hægt að skrá sig á staðnum.

Viðburðurinn er að frumkvæði forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, en hún jafnframt verndari verkefnisins.

Fólk á aldrinum 16–30 ára getur boðið sig fram sem „lóðsa“ og fengið þjálfun til að leiða samtölin en foreldrar, afar og ömmur, kennarar, atvinnurekendur, stjórnmálamenn, listafólk og almenningur um allt land er hvatt til að setjist niður með unga fólkinu. Upplýsingar um þátttöku og skráning fyrir þátttakendur og „lóðsa“ eru á vefnum talasaman.is. Endilega skráðu þig til leiks og taktu vini og/eða fjölskyldu með!

Tveimur dögum fyrir samtalið, 8. október, fá skráðir þátttakendur upplýsingar á tölvupósti um hvert þeir eiga að mæta. Þar kemur fram við hvaða borð viðkomandi á að setjast til  að ræða málin.

Samtalið verður fjölbreytt og byggir á þeim málefnum sem þátttakendur hafa talið mikilvægt að ræða út frá meginspurningu dagsins. Nemendur FVA taka virkan þátt.

Að morgni samtalsdags fá lóðsar þjálfun í að leiða samtalið, lóðsar mæta kl. 10:30 og fá gos og pizzu í hádeginu.

Samtalið fer fram í salnum í FVA, gengið inn frá Vogabraut, undir bogann og beint af augum inn í salinn. Húsið opnar kl. 13:30 fyrir þátttakendur með ávarpi forseta Íslands. Samtalið sjálft hefst kl. 14:00. Kaffi á könnunni.

Í lok samtalsins tekur hvert borð saman stutta setningu eða niðurstöðu fyrir hvert umræðuefni. Setningin á að lýsa því sem kom fram í samtalinu og þarf ekki að fela í sér að allir við borðið hafi verið sammála. Það þarf engan undirbúning fyrir samtalið, mæta bara með áhuga og góða skapið.

Niðurstöður samtalanna um land allt verða aðgengilegar á vefsíðunni talasaman.is og kynntar sérstaklega í Hörpu þann 11. október. Vonast er til að þær muni innihalda leiðarljós og atriði sem við öll getum tekið til okkar sem einstaklingar og stuðla að því samfélagi sem við viljum byggja saman.

Verið velkomin í FVA á laugardaginn!

Gott að vita:

• Samtalsstaðir opna klukkan 13:30 með ávarpi Höllu forseta og samtalið hefst á slaginu 14:00. Lýkur með kveðju frá forseta.

• Þú þarft ekki að undirbúa neitt, bara mæta með opinn huga og vilja til að hlusta og taka þátt.

• Allar nánari upplýsingar eru á talasaman.is/upplysingar

Takk fyrir að taka þátt í samtali um samfélagið sem við viljum byggja saman!

Hlökkum til að sjá þig á laugardaginn!