Opið hús verður í skólanum þriðjudaginn 21. apríl nk.
Deildastjórar og kennarar kynna bóknám á sal skólans, deildastjórar iðnnáms kynna iðnbrautir í sínum deildum, stjórnendur og náms- og starfsráðgjafar verða til spjalls. Kynnisferð verður um heimavistina og boðið upp á veitingar á sal skólans.
Foreldrar, forráðafólk og öll áhugasöm hjartanlega velkomin.
