Jafnréttisáætlun
Brautskráning 29. maí 2026
Í dag, föstudaginn 29. maí 2026, voru 74 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Alls hafa 39 nemendur lokið stúdentsprófi af þremur brautum. 8 hafa lokið burtfararprófi úr rafvirkjun og 4 úr vélvirkjun. 12 nemendur luku prófi af sjúkraliðabraut, 1...
Brautskráning frá FVA
Fer fram föstudaginn 29. maí kl 14-15. JSjá dagskrá. Gestir eru velkomnir. Útskriftarefni mæta kl 12 í skólann. Þá eru afhent blóm í barm, síðan er hópmyndataka, æfing og létt hressing.
Dagskrá fræðsluþings 27. maí
Hér má sjá dagskrá fræðsluþingsins:
Fræðsluþing Vesturlands 2026
Fræðsluþing framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi verður haldið í fyrsta sinn, í FVA á miðvikudaginn, 27. maí. Yfirskriftin er Framtak og forvitni. Málstofur um nám og kennslu verða haldnar á vegum hvers skóla milli kl 10 og 14. Viðburðurinn er liður í...
Hjólhýsi á planinu
FVA heimilar bæjarbúum að geyma hjólhýsi og húsbíla á malarplaninu við heimavistina frá 30. maí til 10. ágúst meðan pláss leyfir. Vinsamlegast sendu tölvupóst til umsjónarmanns fasteigna með nafni, símanúmeri og númeri vagnsins áður en lagt er í stæðið, leo@fva.is....
Heimsókn FVA í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Kennarar úr málmiðgreinum FVA fóru nýverið í heimsókn í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þar sem markmiðið var að efla tengsl milli skóla og miðla reynslu á sviði verknáms og málmiðngreina. Í heimsókninni fengu gestirnir aðskoða aðstöðu skólans, verkefni nemenda og...
Gey og Bríet afhenda söfnunarfé
Góðgerðarfélagið Eynir og Jafnréttisfélagið Bríet afhentu Bjarkarhlíð söfnunarfé að upphæð 260.000 krónur sem safnaðist í vel heppnuðu bingói á vegum félaganna.Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar tók við framlaginu og sagði það munu nýtast vel í starfi...
Niðurstöður þjónustukönnunar meðal nemenda
Í mars var gerð þjónustukönnun meðal nemenda FVA. Könnunin tók til þess hvað nemendum finnst um þjónustuna sem skólinn veitir. Könnunin var lögð fyrir 378 nemendur dagskóla en 220 svöruðu. Meðal þess sem kom fram var að 40% nemenda koma aldrei á bókasafnið. Þau 60%...
Úrslit í stærðfræðikeppni
Hin árlega stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi sem FVA stendur fyrir, fór fram 17. apríl sl og tóku 114 nemendur þátt. Sigríður Ragnarsdóttir, deildarstjóri stærðfræðideildar FVA sér um skipulagningu og framkvæmd keppninnar ásamt stærðfræðikennurum...
LoVe kynningar
LOVE3ST05, eða LOVE áfanginn, er lokaverkefnisáfangi á bóknámsbrautum, þar sem áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, einstaklingsmiðað og verkefnadrifið nám. Nemendur móta verkefnin sjálfir þar sem gert er ráð fyrir að áhersla sé lögð á sérsvið tengt viðkomandi...
Innanhús JAKI
Í kjölfarið af Jafnréttiskeppni KÍ, sem Angela okkar var verðlaunuð fyrir, var ákveðið að efna til innanhúskeppni í jafnréttisverkefnum nemenda. Átta dómarar úr röðum starfsfólks við skólann voru fengnir til að leggja mat á fjögur verkefni sem kepptu til úrslita....
Dimmision!
Í dag er dimmision í FVA þegar útskriftarefni kveðja kennara sína og starfsfólk skólans áður en þau halda á vit nýrra ævintýra.Skólinn bauð til morgunverðar í salnum og síðan leysti hópurinn ýmsar þrautir um skólann í liðakeppni. Að því loknu var förinni heitið til...
Til hamingju Angela!
Angela okkar, myndlistarkona og kennari, sigraði í jafnréttiskeppni KÍ (JAKI) á framhaldsskólastigi ásamt sínum frábæru nemendum! Viðurkenningin er fyrir kennsluverkefnið Nemendur sem aðgerðarsinnar- nemendamiðuð listrannsókn sem kennsluaðferð í...
Útskriftarnemar gróðursetja
Hefð hefur skapast fyrir því að útskriftarnemar gróðursetji tré á hverju vori. Í ár vildi svo skemmtilega til að gróðursetningin bar upp á Degi jarðar, sem haldinn er 22. apríl ár hvert. Útskriftarnemar, ásamt kennara sínum Helenu Valtýsdóttur og félögum úr...
Innritun í Meistaraskóla FVA
Opið er fyrir umsóknir í iðnmeistaranám. Iðnmeistaranám nær til náms í stjórnunar- og rekstrargreinum ásamt fagtengdu námi þar sem það á við. Námið miðar að því að nemendur verði hæfir til að reka fyrirtæki og færir um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin...
Málstofa sjúkraliðanema
Föstudaginn nk. verður málstofa sjúkraliðanema, þar sem 14 útskriftarnemar kynna lokaverkefni sín. Lokaverkefnin eru fjölbreytt og spennandi, allt frá því að fjalla um hvernig dýr geta hjálpað til í hjúkrun, Alzheimersjúkdóminn, geðhelbrigði og fíkn aldraðra.Á...
Heimsókn frá Finnlandi
3 kennarar og 16 nemendur frá Närpes í Finnlandi komu í heimsókn til okkar í FVA. Hópurinn fékk fræðslu um Akranes, lífið í FVA og skoðaði húsnæði skólans. Þau fengu einnig að vera viðstödd kennslu í ensku, dönsku og myndlist. Þeim leist vel á skólann og margt sem...
Velkomin!
Opið hús verður í skólanum þriðjudaginn 21. apríl nk. Deildastjórar og kennarar kynna bóknám á sal skólans, deildastjórar iðnnáms kynna iðnbrautir í sínum deildum, stjórnendur og náms- og starfsráðgjafar verða til spjalls. Kynnisferð verður um heimavistina og boðið...
10. bekkur í heimsókn
Við fengum góða gesti í heimsókn til okkar í FVA þegar 140 nemendur úr 10. bekkjum Grundaskóla, Brekkubæjarskóla og Heiðarskóla kíktu til okkar. Nemendur fengu kynningu á námsframboði hjá deildarstjórum, nemendafélagið kynnti starfsemi sína og bauð nemendum að freista...
Heimsókn í Rarik
Útskriftarnemar á rafiðnaðarbraut gerðu góða ferð í Borgarnes þar sem þeir heimsóttu Rarik. Nemendur fengu að kynnast sögu Rarik og starfsemi þess og fengu útskýringar á búnaði og verkfærum sem fylgja starfseminni. Þau sem vildu fengu að klifra upp rafmagnsstaur í...
Kynning fyrir grunnskólanemendur og Opið hús
Þriðjudaginn 14. apríl verður kynning fyrir nemendur tíundu bekkja Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðarskóla. Nemendur fá kynningu á námsframboði og félagslífi skólans, fara kynningarhring um skólann, fá pizzu & franskar í hádegismat og að lokum verða þau leyst...
Söngkeppni framhaldsskólanna
Ísólfur Darri keppir fyrir hönd FVA í Söngkeppni framhaldsskólanna laugardaginn 11. apríl Ísólfur Darri syngur lagið You don´t have to say you love me með Elvis Presley. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV og hefst kl. 20.45 Við stöndum þétt við bakið á...
Gleðilega páska
Í dag, föstudaginn 27. mars, er síðasti kennsludagur fyrir páskaleyfi. Kennsla hefst að loknu páskaleyfi samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl. FVA óskar starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska.
Slæm spá í fyrramálið
Veðurspáin á morgun er ekki góð, það eru appelsínugular viðvaranir á svæðinu. Veðrið verður verst hér á Skaga um hádegið en gengur svo niður og miðað við spána þarf EKKI að fella niður kennslu almennt. Mögulega komast sumir kennarar ekki frá höfuðborgarsvæðinu og komi...
Vel gert!
Sunna, Ísólfur og Morten stóðu sig virkilega vel í 8 liða úrslitum Gettu betur gegn liði Fjölbrautaskóla Suðurlands. Mikil og góð stemning var í stuðningsliði FVA í sjónvarpssal og atriðið úr söngleiknum Hvar er draumurinn? var frábært. Við í FVA erum stolt af okkar...
Stærðfræðikeppni frestað
Stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi, sem vera átti föstudaginn 20. mars, er frestað til 17. apríl vegna slæmrar veðurspár!
Stærðfræðikeppnin á föstudaginn
Nemendur í efstu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi keppa í stærðfræði í FVA föstudaginn 20. mars kl 14. Öllum þátttakendum er boðið í pizzu að keppni lokinni. Nemendum í 10 efstu sætunum í prófinu í hverjum árgangi eru veittar viðurkenningar laugardaginn 18. apríl kl....
Gettu betur í beinni!
Fimmtudaginn nk. mun lið FVA mæta liði FSU í beinni útsendingu á RÚV. kl. 20.15Við hvetjum öll til að fylgjast vel með og senda okkar fólki hlýja strauma.Áfram FVA!
Niflungahringurinn allur
Nemendur í íslensku fóru, ásamt kennurum sínum, í Borgarleikhúsið að sjá Niflungahringinn allan í útfærslu Hunds í óskilum. Sýningin er byggð á óperum Richards Wagners, þar sem hann vinnur með germanska menningararfinn og leitar meðal annars fanga í Snorra-Eddu sem...
Grúsk í vélvirkjun
Í vélvirkjunarnámi fá nemendur að kynnast heimi véla og tæknibúnaðar með verklegri vinnu. Lögð er áhersla á að skilja hvernig vélar eru byggðar upp, hvernig mismunandi kerfi vinna saman og hvernig greina má bilanir. Nemendur fá meðal annars að taka vélar í sundur,...
Stærðfræðikeppni grunnskólanna
Hefð er fyrir því að halda stærðfræðikeppni í FVA fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla á Vesturlandi. Keppnin er haldin í FVA föstudaginn 20. mars og hefst kl 14. Öllum þátttakendum er boðið í pizzu að keppni lokinni. Nemendur í 10 efstu sætunum í prófinu í...
Erasmus+ verkefnið WIFII
Erasmus verkefnið okkar WIFII (Widen Interaction for Innovative Inclusion) er komið á fullt skrið á ný. Að þessu sinni eru Helena Valtýsdóttir og Kristín Kötterheinrich staddar í Tourcoing í Frakklandi ásamt fimm nemendum FVA. Viðfangsefnið í þessari ferð er...
Húrra!
Leiklistarklúbburinn Melló frumsýndi sl. föstudag söngleikinn Hvar er draumurinn? eftir Höskuld Þór Jónsson. Söguþráðurinn er saminn út frá vinsælum lögum Sálarinnar hans Jóns míns og snýst um saklausa ást, sanna vináttu, að gefast ekki upp en láta draumana...
Heimsókn í Norðurál
Hópur hressra nemenda í vélvirkjun kíkti í heimsókn í Grundartanga nýverið. Norðurál tók vel á móti hópnum og bauð upp á áhugaverða fræðslu um álframleiðslu og skoðunarferð um verksmiðjuna. Það var virkilega hvetjandi fyrir nemendur að sjá vélbúnaðinn ´í aksjón´ og...
Hvar er draumurinn?
Það styttist í frumsýningu! Leiklistarklúbburinn Melló hefur undanfarnar vikur æft stíft í Bíóhöllinni undir styrkri stjórn Einars Viðarssonar. Söngleikurinn Hvar er draumurinn? eftir Höskuld Þór Jónsson er kraftmikil, hjartnæm og sprenghlægileg sýning. Lög...
Skoða miðannarmatið
Miðannarmat er í gangi en kennarar gefa um miðbik annar stutta umsögn í INNU um hvern nemanda. Opnað er fyrir niðurstöður matsins fyrir nemendur og forráðamenn áður en kennsla hefst, að morgni þriðjudagsins 24. febrúar. Mikilvægt er að skoða miðannarmatið sem gefur...
Opnir dagar, miðannarmat og vorfrí
Það hefur verið líf og fjör í skólanum og víðar undanfarna daga á opnum dögum. Dagskráin var fjölbreytt, lífleg og skemmtileg eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Fimmtudaginn 19. febrúar er miðannarmat, opnað verður fyrir niðurstöður matsins að morgni...
Opnir dagar 16.-18. febrúar
Opnir dagar hófust i dag með afar fróðlegum fyrirlestri Ragnars Olgeirssonar / Jóels Sæmundssonar um framtíðina... Dagskrá næstu daga: Mánudagur 16. febrúar: Hefðbundin kennsla fyrir hádegi. Opnir dagar hefjast svo formlega eftir hádegi. Þriðjudagur 17. febrúar: Opnir...
Að brjóta 1000 trönur
Að brjóta 1000 trönur var verkefni sem þær Borghildur Jósuadóttir og Bryndís Siemsen stóðu fyrir og var styrkt af Menningarsjóði Akraneskaupstaðar. Þátttakendur í verkefninu voru Fjölbrautaskóli Vesturlands, Brekkubæjarskóli, Grundaskóli og Félagsstarf...
Jafnréttisdagur FVA
Jafnréttisdagur er haldinn í fyrsta sinn í FVA 12. febrúar, en ákveðið hefur verið að dagurinn verði árlegur hér eftir. Jafnrétti er eitt af þremur gildum FVA. Við erum með formlega jafnréttisstefnu og gerum jafnréttisáætlun. Bryndís Gylfadóttir náms- og...
Takk fyrir okkur, Akraneskaupstaður
Leiklistarklúbburinn Melló fékk nýverið menningarstyrk frá Akraneskaupstað til að setja upp sýninguna Hvar er draumurinn? Æfingar eru komnar á fullt og er virkilega kærkomið að fá þennan stuðning. Stefnt er að frumsýningu 7. mars. Taktu daginn fá!
Vika 6
Vika 6, sjötta vika hvers árs, er árlegur viðburður þar sem skólasamfélagið er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu. Þema vikunnar í ár er öryggi og ofbeldi. Jafnréttisfélagið Bríet, í samvinnu við Góðgerðarfélagið Eynir...
Bólusetning
Næstu tvær vikurnar verður í boði bólusetning gegn HPV veirunni fyrir drengi í FVA fædda 2008-2009. HPV (Gardasil) bólusetningin verður framkvæmd í stofu skólahjúkrunarfræðings (hjá stoðteymi) eftirfarandi daga: 27.janúar 11:00-13:00 29.janúar 11:00-13:00 3.febrúar...
Gettu betur
Lið FVA; þau Sunna, Ísólfur og Morten hafa unnið fyrstu tvær viðureignir sínar í Gettu betur spurningakeppninni. Í 1. umferð sigruðu þau lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ 24-14 og í 2. umferð lögðu þau lið Fjölbrautaskólans í Austur Skaftafellssýslu 11-8. Þann 19. mars...
Sveinspróf í trésmíði
Dagana 9.-11. janúar þreytti fjölmennur hópur frá FVA sveinspróf í trésmíði við skólann. Hópurinn kláraði með glæsibrag og góðri meðaleinkunn. Nemendahópurinn samanstóð af 7 dagskólanemendum en hinir 17 komu úr dreifnámi sem kennt er um helgar, það er nám með...
Gettu betur
Lið FVA keppir sína fyrstu viðureign í Gettu betur í dag, 6. janúar klukkan 18.50. FVA mætir Fjölbraut í Garðabæ, hægt er að fylgjast með keppninni á ruv.is. Lið FVA er skipað þeim Ísólfi Darra, Morten og Sunnu. Áfram FVA!
Myndir frá brautskráningu 19. des 2025
Ljósmyndir BLIK Studio
Til hamingju!
Ljósmyndir BLIK Studio Útskriftarhópurinn með skólameistara og aðstoðarskólameistara Nemendur sem luku stúdentsprófi Nemendur sem luku námi í húsasmíði og vélvirkjun Meistaraskólinn Til hamingju!
Lokað á skrifstofunni
Skrifstofa skólans er lokuð frá 22. desember og milli jóla og nýárs en opnar aftur mánudaginn 5. janúar kl 9. Brýnum erindum má beina til skólameistara. Mánudaginn 5. janúar er starfsmannafundur. Kennsla hefst þriðjudaginn 6. janúar skv. stundaskrá. Bestu óskir um...
Brautskráning 19. des 2025 – myndir væntanlegar
Í dag, föstudaginn 19. desember 2025, voru 50 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Stór hluti útskriftarnema hefur lokið dreifnámi í húsasmíði eða 17 nemendur. Samtals hafa 28 lokið námi í húsasmíði, þar af 3 konur. 2 nemendur eru að ljúka bæði...
Slökkviliðið í heimsókn
Á námsmatsdögum fengu nemendur í vélvirkjun og rafvirkjun Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar í heimsókn. Nemendur fengu kynningu á slökkviliðinu, starfsemi þess sem og fyrirlestur um eldvarnir. Einnig fór fram verkleg kennsla í notkun slökkvitækja og...
Brautskráning á föstudag
Föstudaginn 19. desember er brautskráning frá FVA. Alls eru útskriftarefni 48 talsins. Vinsamlegast láttu vita á skrifstofu skólans ef þú ætlar ekki að mæta á athöfnina (skrifstofa@fva.is eða s. 433 2500). Útskriftarnemar mæta í salinn kl 12.30 í myndatöku og æfingu....
Viltu kenna spænsku?
Kennari óskast í 50% starf við spænskukennslu á vorönn við Fjölbrautaskóla Vestulands. Umsóknarfrestur er til og með 19.12.2025 Helstu verkefni og ábyrgð ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í greininni skapar hvetjandi og jákvætt námsumhverfi tekur...
ÍSLE3BE í Reykjavíkurferð
Nemendur í íslensku eru sannarlega á ferð og flugi þessa dagana. Að þessu sinni fóru Jón Gunnar og Kristín Edda með nemendur í ferð til Reykjavíkur þar sem heimsóttar voru þrjár merkar byggingar, Edda, Veröld og Þjóðminjasafnið. Meðal annars fengu nemendur leiðsögn um...
Þverfaglegt verkefni á slóðum Hallgríms Péturssonar
18. nóvember sl. fóru Kristín Edda, Angela og Jón Gunnar með nemendur í þverfaglegt verkefni innan deildar íslensku og listgreina á slóðir skáldsins Hallgríms Péturssonar. Ferðinni var heitið að Saurbæ þar sem staðarhaldarar buðu upp á heitt súkkulaði og piparkökur....
Brautskráning 19. desember
Brautskráð verður frá FVA föstudaginn 19. desember og hefst athöfnin kl 14. Útskriftarefni eru um 45 talsins. Aðstoðarskólameistari setur samkomuna, skólameistari flytur ávarp auk fulltrúa nýnema og eldri útskriftanema (1990). Athöfnin fer fram í sal skólans og tekur...
Spænskukennari óskast
Kennari óskast í 50% starf við spænskukennslu við Fjölbrautaskóla Vestulands. Helstu verkefni og ábyrgð ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í greininni skapar hvetjandi og jákvætt námsumhverfi tekur þátt í faglegu samstarfi og stefnumótun Hæfniskröfur...
Lokaspretturinn
Nú er lokasprettur annarinnar framundan. Þá er mikilvægt að skipuleggja sig vel, hugsa vel um sig og keyra sjálfstraustið í botn.
LOVE kynningar
LOVE3ST05 eða LOVE áfanginn er lokaverkefnisáfangi á bóknámsbrautum, þar sem áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, einstaklingsmiðað og verkefnadrifið nám. Nemendur móta verkefnin sjálfir þar sem gert er ráð fyrir að áhersla sé lögð á sérsvið tengt viðkomandi...
Erasmus+ verkefnið WIFII
Erasmus+ verkefnið WIFII (Widen Interaction for Innovative Inclusion) er í fullum gangi. Að þessu sinni eru Helena Valtýsdóttir og Anna Bjarnadóttir staddar í Gaziantep í Tyrklandi ásamt tveimur nemendum, Ásrúnu Silju og Söndru Björk. Viðfangsefnið í þessari ferð eru...
Ráðherra í heimsókn
Guðmundur Ingi, ráðherra mennta- og barnamála, heimsótti FVA föstudaginn 14. nóvember ásamt fríðu föruneyti. Starfsfólk skólans og nemendur komu saman á fund til að hlýða á ráðherra og hans fólk ræða áform um breytingar á framhaldsskólastiginu og þau áhrif sem það...
Barnaþing Akraness
Hið árlega Barnaþing Akraness fór fram í Þorpinu dagana 11. - 13. nóvember. Á Barnaþinginu koma saman fulltrúar úr 5. - 10. bekk grunnskólanna á Akranesi og ræða mál er varða börn og ungmenni bæjarins. Nemendur FVA sáu um hlutverk ritara á þinginu. Innslag um...
Ráðherra kemur í heimsókn
Ráðherra mennta- og barnamála kemur í FVA föstudaginn 14. nóv. Við fáum fund með honum og ráðuneytisfólki í Salnum kl 13.15-14.15 til að ræða áform hans um breytingar á framhaldsskólastiginu sem geta haft áhrif á okkar starfsemi. Það er mikilvægt að sem sem flestir...
Skammhlaup 2025 – myndir
Hið árlega Skammhlaup FVA fór fram fimmtudaginn 6. nóvember. Nemendum skólans var skipt upp í 6 lið sem kepptu sín á milli í ýmsum þrautum, bóklegum og verklegum. Skammhlaupið hófst með pylsupartýi á sal skólans, að því loknu var skrúðganga frá skólanum í íþróttahúsið...
Heimsókn
Nemendur á Afreksíþróttasviði fengu skemmtilega heimsókn frá Maximilian Hagberg, fulltrúa frá ASM Sports. ASM Sports er bandarískt fyrirtæki sem aðstoðar ungt íþróttafólk við að tengjast háskólum, að fá námsstyrk og tækifæri til að stunda bæði nám og íþróttir við...
Innritun stendur yfir
Innritun stendur yfir fyrir vorönn 2026! Opið er fyrir innritun í dreifnám á sjúkraliðabraut og dreifnám í húsasmíði sem og bóknámsbrautir í dagskóla til 1. desember. Frekari upplýsingar og umsóknir inn á http://innritun.is
Vettvangsferð Afreksíþróttasviðs – myndir
58 nemendur á Afreksíþróttasviði skólans skelltu sér í vettvangsferð í höfuðborgina, ásamt Hildi Karen og Áslaugu. Íþróttafræðideild Háskóla Íslands í Laugardal var heimsótt þar sem nemendur fengu kynningu á deildinni, skoðuðu rannsóknarstofuna og því starfi sem þar...
Áhrif kvennaverfalls á nemendur
Kæri nemandi! Kvennaverkfall Eins og þú hefur heyrt og séð er kvennaverkfall á morgun, föstudaginn 24. okt. Það þýðir að konur og kvár leggja niður störf til að sýna fram að að samfélagið virkar ekki án þeirra og það þarf að meta að verðleikum. Líka er verið að...
Kvennaverkfall 24. október
Föstudaginn 24. október nk hafa um 40 launþega-, kvenna- og mannréttindasamtök boðað til verkfalls meðal kvenna og kvára til að mótmæla kynbundnu misrétti, undirstrika mikilvægi framlags kvenna og kvára til samfélagsins alls, í launuðum og ólaunuðum störfum, ásamt því...
Miðannarmat og vetrarfrí
Föstudaginn 17. október er miðannarmat. Kennarar gefa nemendum umsögn og upplýsingar um stöðu í áfanga. Þann dag er ekki kennt skv. stundaskrá en ef kennari boðar nemanda til sín er skyldumæting. Mánudaginn 20. og þriðjudaginn 21. október er vetrarfrí í skólanum....
Bikarinn er kominn heim!
West Side bikarkeppnin var haldin í gær, 14. október, og tókst frábærlega vel. Keppt var í fótbolta, körfubolta, bandý, blaki og að lokum spurningakeppni. FVA bar sigur úr býtum í ár eftir líflega og skemmtilega keppni. Dagurinn endaði á West Side balli í FVA þar sem...
Fargo í Bíó Paradís
6. október sl. hélt fríður hópur nemenda, ásamt Dröfn Guðmundsdóttur enskukennara, í Bíó Paradís að sjá kvikmyndina Fargo. Fyrir sýninguna fékk hópurinn kynningu á myndinni frá Oddýju Sen kvikmyndafræðing og kennara, þá sérstaklega á leikstjórum myndarinnar, Coen...
Val fyrir vorönn 2026
Í dag var áfangakynning á Gamla sal en þar gátu nemendur hitt kennara og kynnt sér áfanga sem verða í boði á næstu önn. Allar nánari upplýsingar má sjá hér.
Unnar tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna
Okkar frábæri Unnar Þ. Bjartmarsson, kennari í húsasmíði í FVA og smíðakennari við Grunnskóla Borgarfjarðar, er tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna fyrir að kveikja áhuga nemenda á öllum aldri á iðn- og verknámi og leggja grunn að framtíðarstarfsfólki í...
Starfamessa 2025, myndir
3. október var Starfamessa 2025 haldin í FVA. Messan heppnaðist gríðarlega vel þar sem yfir 40 fyrirtæki og stofnanir kynntu störf sín, atvinnuvegi og framtíðarmöguleika fyrir áhugasömum nemendum og öðrum gestum. Við þökkum öllum, sýnendum og gestum, kærlega fyrir...
Heimsókn í vinnslu Akraborgarinnar
Nemendur í rekstrarhagfræði fóru í frábæra heimsókn í vinnslu Akraborgarinnar. Nemendur fengu að sjá hvernig hráefni breytist í fullunna vöru og hvernig skipulag, gæðastjórnun og nýting haldast í hendur í framleiðsluferlinu. Bestu þakkir til Akraborgarinnar fyrir...
Áhugavert fræðsluerindi!
Hvað viltu verða? Velkomin á starfamessu á föstudaginn
Fyrirtæki og stofnanir kynna störf, atvinnuvegi og framtíðamöguleika fyrir nemendum FVA og öllum áhugasömum á Vesturlandi, föstudaginn 3. október frá kl 9-14. Grunnskólar á svæðinu koma í heimsókn og húsið verður opið frá 12 á hádegi fyrir gesti og gangandi....
Þrískólafundur 2025
Samstarfsfundur starfsfólks framhaldsskólanna á Vesturlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum var haldinn í FS mánudaginn 29. september. Þessir skólar hafa lengi unnið saman að ýmsum málum eins og námsframboði og skipulagi náms. Allt starfsfólk skólanna hittist síðan á...
Erasmus+ verkefnið WIFII
Erasmus+ verkefnið WIFII (Widen Interaction for Innovative Inclusion) er aftur komið á fulla ferð og eru 5 nemendur FVA núna staddir í Lamia í Grikklandi ásamt Helenu Valtýsdóttur og Kristínu Kötterheinrich. Þemað að þessu sinni eru málefni fatlaðra. Á sunnudaginn...
Kennsla fellur niður
Mánudaginn 29. september er skólinn er lokaður og kennsla fellur niður vegna árlegs samstarfsfundar FVA, FS og FSU sem haldinn er í Keflavík.
Segðu það upphátt!
Heilsuvika Evrópu hófst í FVA í dag með frábærum fyrirlestri frá Píeta samtökunum.Tómas Daði og Birna Rún ræddu opinskátt um andlega líðan og mikilvægi þess að tala saman um hlutina.Kærar þakkir fyrir okkur Píeta samtökin!
Jarðfræðiferð
23 vaskir nemendur í jarðfræði fóru ásamt kennara sínum, Finnboga Rögnvaldssyni, í stórgóða skoðunarferð um Melasveit og vestur á Mýrar.Marbakki fá síðjökultíma, jökulhörfun, ummynduð berglög og innskot, megineldstöðvar, skriður og upphleðsla Akrafjalls var meðal þess...
Segðu það upphátt!
Píeta-samtökin eru á ferðalagi um landið með fræðslu fyrir framhaldsskóla um forvarnir vegna sjálfsvíga. Yfirskriftin er Segðu það upphátt! Þau koma til okkar á mánudaginn, 22. september, með erindi á sal. Þar með hefst Heilsuvikan hjá okkur. Verið öll innilega...
Heilsuvika 22. – 26. september
Heilsuvika FVA hefst á mánudaginn í næstu viku! Stútfull dagskrá!
Útskriftarnemar gróðursetja
Það er hefð fyrir því að útskriftarnemar skólans gróðursetji tré. Þessa önnina var plantað rétt ofan við hringtorgið hjá Bónus. Að venju var það Jens Baldursson formaður Skógræktarfélags Akraness sem sá um gjörninginn. Þetta gekk...
Xana og Sprettur
Nýlega fengu náms-og starfsráðgjafar FVA kynningu á Spretti, nýsköpunarverkefni sem starfrækt er innan kennslusviðs Háskóla Íslands. Sprettur er í boði fyrir nemendur með erlendan bakgrunn sem eru á síðasta ári í framhaldsskóla. Það veitir stuðning í íslenskunámi,...
Introductory Meeting
Kynningarfundur fyrir forráðamenn nýnema
Nýnemaferð
Föstudaginn 29. ágúst er nýnemaferð í FVA en það er skemmtiferð með stjórn nemendafélagsins NFFA með hópefli í huga. Nemendur hittast við skólann kl 8.30 og fara síðan í rútu í Mosfellsbæ þar sem verður gleði og grill. Áætluð heimkoma með rútunni er kl 13. Muna að...
Nýnemar á heimavist
Á föstudaginn kl 14 er móttaka nýrra íbúa á heimavist og forráðamanna þeirra í Salnum. Gengið er inn frá Vogabraut, undir bogann og beint inn í salinn. Farið verður yfir mikilvægar upplýsingar, helstu heimavistarreglur, fyrirspurnum svarað og herbergislyklar afhentir....
Nýnemakynning í FVA
Föstudaginn 15. ágúst er kynning fyrir nýnema í FVA en þá koma nýir nemendur (árg. 2009) i skólann. Alls eru 125 nýnemar skráðir í skólann og við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur. Pizza í hádeginu í boði skólans. Nýnemar,...
Tölva fyrir skólann
Nú líður að skólabyrjun og vert að árétta að mælst er til þess að nemandi hafi með sér tölvu til að nota í náminu. Hún þarf ekki að vera glæný, kosta stórfé eða vera með frábært skjákort - nema hjá nemendum í rafvirkjun sem þurfa tölvu með a.m.k. 16GB RAM. Annars...
Afleysing á bókasafnið
Vegna fæðingarorlofs vantar afleysingu á bókasafns- og upplýsingamiðstöð FVA til eins árs, frá 1. október nk eða fyrr (samkomulagsatriði). Áhugasamir hafi samband hið fyrsta við skólameistara sem veitir nánari upplýsingar, steinunn@fva.is eða í síma 855 5720. Kósí á...
Umsókn um sveinspróf
Iðan fræðslusetur hefur tekið í notkun nýtt umsýslukerfi vegna sveinsprófa. Umsóknarferlið er allt orðið rafrænt í stað þess að sækja um á pappírsformi eins og hefur verið gert hingað til. Sótt er um í gegn um síðu Iðunnar, Iðan fræðslusetur (sjá mynd hér fyrir...
Innritun og sumarleyfi
Innritun nýrra nemenda í skólann er lokið og svarbréf verið send út. Aðsókn að skólanum var góð sem fyrr, alls hafa 169 nemendur fengið boð um skólavist þar af 133 sem luku 10.bekk í vor. Greiðsluseðlar vegna skólagjalda næstu annar verða sendir út eftir...
Sumarleyfi á skrifstofu
Skrifstofu skólans verður lokað kl 14 föstudaginn 20. júní nk og opnar aftur þriðjudaginn 5. ágúst kl 10. Brýnum erindum má beina til skólameistara, steinunn@fva.is. Njótið sumarsins kæru nemendur og frábæra starfsfólk! Kósí á...
Innritun stendur sem hæst
Nú renna upp síðustu dagar innritunar nýnema í framhaldsskóla. Tekið er á móti umsóknum í gegnum https://island.is/umsokn-um-framhaldsskola. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní. Allar upplýsingar um FVA - fjölbreytt námið, fjörið og félagslífið - hjá náms-og...
Brautskráning 28. maí 2025
Útskriftarhópurinn vorið 2025 með skólameistara og aðstoðarskólameistara. Í dag, miðvikudaginn 28. maí 2025, voru 85 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands af 7 mismunandi námsbrautum. 18 hafa lokið burtfararprófi úr rafvirkjun, 6 nemendur luku bæði...
Brautskráning á miðvikudag
Brautskráning frá FVA er 28. maí og hefst kl 14, gengið inn frá Vogabraut, undir bogann og beint inn í sal. Alls eru 85 nemendur að útskrifast. Útskriftarnemar mæta kl 12 í salinn þar sem verður tekin hópmynd, þá er æfing fyrir athöfnina og síðan er hressing í boði....