2.5 Skólareglur
Skólanámskrá FVA
Skólareglur í FVA fjalla um samskipti og byggja á gagnkvæmri virðingu nemenda, kennara og annars starfsfólks. Auk þess hvetja þær til góðrar umgengni, tillitssemi og umburðarlyndis. Samskiptasáttmála
FVA skal halda í heiðri.
Það er stefna FVA að stuðla að því að öll sem þar starfa, nemendur, kennarar og annað starfsfólk, umgangist hvert annað af kurteisi og tillitssemi. Nemendur og aðrir sem leita eftir þjónustu skrifstofu, bókasafns, heimavistar, stoðþjónustu og mötuneytis eiga að mæta góðu og vinsamlegu viðmóti. Á sama hátt ætlast skólinn til þess að öll þau sem leita eftir þjónustu geri það á kurteislegan hátt og sýni skilning og biðlund ef ekki er hægt að sinna erindum þeirra samstundis.
Um skólareglur og breytingar á þeim er fjallað í skólaráði. Það er skipað tveim fulltrúum nemenda, tveim kennurum, skólameistara og aðstoðarskólameistara. Skólameistari ákveður eftir alvarleika brota hvort fjallað skuli um brot á skólareglum (önnur en brot á skólasóknarreglum) í skólaráði. Verkferli vegna brota á skólareglum er að finna í gæðahandbók.
Skólareglur og viðurlög við broti
1. Þau sem þiggja skólavist í Fjölbrautaskóla Vesturlands gangast með því undir þær reglur sem þar gilda, m.a. um skólasókn og námsframvindu og hlíta viðurlögum við brotum á þeim.
2. Nemendur skulu sýna skólasystkinum sínum og starfsfólki skólans tillitssemi og kurteisi í daglegum samskiptum.
3. Nemendur eiga rétt á að þeim sé sýnd kurteisi, tillitssemi og virðing og að þau séu ekki lögð í einelti eða beitt kynferðislegri áreitni, kyndbundinni áreitni eða ofbeldi af samnemendum eða starfsfólki skóla.
4. Verði nemandi eða starfsfólk vart við einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi eða ofbeldi, ber viðkomandi að láta náms- og starfsráðgjafa eða stjórnendur vita af því strax. Einnig er hægt að tilkynna um slíkt á vef skólans. Náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur vinna í samræmi við verklagsreglur þar um í gæðahandbók.
5. Nemendur bera ábyrgð á að stunda nám sitt samkvæmt námsáætlunum og fyrirmælum kennara og ekki valda truflun í kennslu og skólastarfi.
6. Nemendum ber að ganga vel um húsnæði, tæki og annan búnað skólans.
7. Ölvun, neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð í skólanum og á samkomum og ferðalögum á vegum skólans. Brot á þessari reglu varðar ávallt skriflegri áminningu eða brottrekstri eftir atvikum.
8. Reykingar eru óheimilar í skólanum og á lóð hans, þ.mt. heimavist. Sama gildir um rafrettur og nikótínnotkun, t.d. í formi nikótínpúða og munntóbaks.
9. Neysla matar og drykkja er bönnuð í kennslustofum.
10. Ekki má festa upp auglýsingar eða dreifa prentuðu efni í skólanum nema með leyfi skólameistara.
11. Brot nemenda á skólareglum getur leitt til brottvísunar úr skóla að undangenginni skriflegri áminningu. Ef ágreiningsmál eða brot á skólareglum koma upp skal aðstoðarskólameistari skrá málsatvik, ræða við málsaðila og upplýsa jafnframt forráðamenn ólögráða nemenda um málið og andmælarétt þeirra ef áminning er fyrirhuguð. Aldrei skal gengið lengra í aðgerðum og viðurlögum en nauðsyn krefst og ef tekin er íþyngjandi ákvörðun gagnvart nemanda skal ekki beita viðurlögum nema viðkomandi hafi áður verið veitt aðvörun eða áminning. Í skriflegri áminningu á gefa nemendum kost á að bæta ráð sitt. Við þriðju áminningu á yfirstandandi skólaári er nemanda vísað úr skóla. Ef tekin er íþyngjandi ákvörðun gagnvart nemanda skal um undirbúning hennar fara eftir stjórnsýslulögum.
12. Verði nemandi uppvís að því að hafa sýnt samnemanda sínum ókurteisi, tillitsleysi, vanvirðingu, lagt í einelti eða hótað því, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi getur skóli tekið ákvörðun um aðgerðir og/eða viðurlög gagnvart viðkomandi. Markmið aðgerða og viðurlaga geta meðal annars verið að vernda réttindi einstakra nemenda við skólann og stuðla að bættum samskiptum milli nemenda. Aðgerðir geta falist í ákvörðun um námsfyrirkomulag, t.d. um stundatöflu, fjarnám, skólahúsnæði, og þátttöku í viðburðum á vegum skóla. Viðurlög geta verið brottvísun úr skóla tíma- eða ótímabundið.
13. Til viðbótar við þessar reglur gilda ýmis ákvæði um félagslíf nemenda sem skráð eru í handbók nemendafélagsins (NFFA), sem og heimavistarreglur.