fbpx

Réttur nemenda til náms

Skólanámskrá FVA

Þeir sem lokið hafa grunnskólanámi, hafa hlotið jafngilda undirstöðumenntun; hafa náð 16 ára aldri eða eru á 16. aldursári eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla. Þessir einstaklingar eiga jafnframt rétt á því að stunda nám til 18 ára aldurs, samanber þó ákvæði 33. gr. framhaldsskólalaga um skólareglur og meðferð mála.

Brot á skólareglum kann að leiða til þeirra viðurlaga að nemendum verði vísað úr skóla eða tilteknu fagi ótímabundið eða um nokkurt skeið. Við slíka ákvörðun skólameistara skal fylgja reglum stjórnsýslulaga um málsmeðferð. Þess skal gætt að forsjárforeldrum/forráðamönnum ólögráða nemenda, ásamt nemendum sjálfum, sé veittur andmælaréttur.