fbpx

Verkstjórn í kennslustundum

Skólanámskrá FVA

  1. Kennari er verkstjóri í kennslustundum og stjórnar því sem þar fer fram. Það er réttur kennara og nemenda að vinnufriður ríki í kennslustundum.
  2. Kennara er heimilt að færa í sundur einstaklinga sem trufla.
  3. Kennara er heimilt að vísa nemanda úr kennslustund.
  4. Kennara er heimilt að neita nemanda sem vísað hefur verið úr kennslustund um að sækja tíma í viðkomandi áfanga hafi nemandinn ekki gert hreint fyrir sínum dyrum.
  5. Nemendur sem ítrekað trufla vinnufrið í kennslustundum geta átt yfir höfði sér brottvísun úr skóla.
  6. Notkun síma, myndavéla, fartölva, spjaldtölva og tónhlaða er óheimil í kennslustundum án leyfis kennara.