Skólasóknarreglur
Skólanámskrá FVA
Eftirfarandi reglur gilda um skólasókn, skráningu óheimilla fjarvista, viðurlög við þeim og einkunn fyrir skólasókn:
- Nemendur skulu sækja allar kennslustundir samkvæmt stundatöflu sinni og koma stundvíslega til kennslu.
- Ef nemandi er fjarverandi úr kennslustund, eða mætir eftir að 15 mínútur kennslustundar eru liðnar, skráir kennari fjarvist í Innu. Komi nemandi of seint, þ.e. eftir að kennari hefur lokið við að skrá viðveru, en þó áður en 15 mínútur eru liðnar, skrifar kennari S fyrir seint. Sambærilegar reglur gilda yfirgefi nemandi kennslustund áður en henni er lokið. Þrjú S jafngilda einu F sem táknar fjarvist.
- Nemandi, sem ekki hefur mætt í kennslustund getur ekki farið fram á að fá kennslu í því efni sem búið er að fara yfir.
- Nemendur geta fylgst með skólasókn sinni í Innu. Eftir 5 og 10 vikur í kennslu er mætingayfirlit tekið; nemendur með 9 fjarvistastig eða fleiri fá senda viðvörun um yfirvofandi úrsögn úr áfanga og leiðbeiningar um hvernig þeir geta nýtt andmælarétt sinn.
- Kennurum er heimilt að setja reglur um mætingu og aðra ástundun í námsáætlanir einstakra áfanga. Í þeim tilvikum skal koma fram hvaða afleiðingar það hefur fyrir nemandann fari hann ekki að reglum áfangans.
- Veikindi og önnur forföll skal tilkynna í gegnum Innu eða á skrifstofu skólans samdægurs. Nemanda ber að tilkynna forföll fyrir klukkan 10:00 hvern virkan dag sem forföll vara. Veikindi sem vara skemur en einn dag er ekki hægt að tilkynna rafrænt en nemandi getur gert grein fyrir þeim á skrifstofu skólans.
- Forföll vegna heimsókna til lækna eða annarra sérfræðinga á heilbrigðissviði sem vara skemur en einn skóladag er hægt að tilkynna á skrifstofu. Slíkri tilkynningu skal fylgja vottorð eða dagsett kvittun frá heilbrigðisstofnun.
- Ef forföll vegna veikinda eru samtals meira en sem svarar tveim vikum getur skólameistari krafist þess að veikindaforföll verði eftirleiðis staðfest með vottorði frá lækni eða skólahjúkrunarfræðingi.
- Ef nemandi gerir grein fyrir öllum veikindaforföllum í samræmi við 3. og 4. grein hér að ofan þá valda veikindi því ekki að hann fái lægri einkunn en 7 fyrir skólasókn. (Veikindi eru dregin frá upp að 93%).
- Einkunn er gefin fyrir skólasókn og birtist hún í námsferli nemenda og á útskriftarskírteini. Skólasóknareinkunn ræðst af skólasókn samkvæmt töflunni hér fyrir neðan. Nemandi í fullu námi (24 kennslustundum eða meira) sem nær 9 eða 10 í skólasóknareinkunn fær 1 einingu á fyrsta þrepi sem er færð inn í námsferil hans við lok annar.
Frá 98% upp í 100% gefur einkunnina 10
Frá 96% upp að 98% gefur einkunnina 9
Frá 93% upp að 96% gefur einkunnina 8
Frá 90% upp að 93% gefur einkunnina 7
Frá 87% upp að 90% gefur einkunnina 6
Frá 85% upp að 87% gefur einkunnina 5
Frá 82% upp að 85% gefur einkunnina 4
Frá 80% upp að 82% gefur einkunnina 3
Frá 78% upp að 80% gefur einkunnina 2
Skólasókn undir 78% gefur einkunnina 1 - Sé skólasóknareinkunn lægri en 5 á nemandi ekki vísa skólavist á næstu önn.
- Ef um langvarandi veikindi nemanda er að ræða skal hafa samband við skólahjúkrunarfræðing eða náms- og starfsráðgjafa í upphafi hverrar annar og fylgja fyrirmælum þeirra um regluleg samskipti á önninni.
- Í sumum verklegum áföngum og áföngum án lokaprófs er gerð krafa um viðveru og þeim er ekki hægt að ljúka ef forföll eru umfram tilskilið hámark sem er tilgreint í námsáætlun.
- Ef nemandi mætir ekki í skólann fyrstu 5 kennsludagana á önn og lætur ekki vita af sér á skrifstofu skólans þá verður haft samband við hann til að leita skýringa. Hyggist hann ekki stunda nám við skólann þá önn verður hann gerður óvirkur í INNU.