Niðurfelling fjarvista
Skólanámskrá FVA
Reglur um niðurfellingu fjarvista
Fjarvistir aðrar en vegna veikinda eru felldar niður að fullu í eftirfarandi tilvikum:
- Vegna námsferða á vegum skólans (ferðir skipulagðar af nemendafélagi skólans, samþykktar af skólastjórnendum, falla hér undir).
- Vegna tiltekinna starfa í stjórn nemendafélags skólans, að fengnu leyfi skólameistara.
- Vegna keppnisferða á vegum skólans eða nemendafélags skólans, að fengnu leyfi skólameistara.
- Vegna vinnu við undirbúning og framkvæmd stórviðburða á vegum nemendafélags skólans, að fengnu leyfi skólameistara.
- Vegna þátttöku í eða undirbúnings fyrir íþróttakeppni á vegum landsliðs, enda liggi fyrir staðfesting á slíkri þátttöku frá viðkomandi sérsambandi.
- Þegar rökstudd umsókn um leyfi vegna brýnna erinda liggur fyrir frá nemanda eða forráðamönnum hans, að fengnu leyfi skólameistara.
- Vegna ófærðar eða annarra óviðráðanlegra tilvika, enda geti nemandi skýrt og staðfest þá töf sem hann varð fyrir.
- Vegna útfarar nákomins ættingja eða vinar.
Fjarvistir eru felldar niður að hluta (þ.e. eins og um veikindi væri að ræða) í eftirfarandi tilvikum:
- Vegna þátttöku í eða undirbúnings fyrir íþróttakeppni á vegum íþróttafélags, enda liggi fyrir staðfesting á slíkri þátttöku frá viðkomandi íþróttafélagi.
- Vegna veikinda barns sem nemandi á eða hefur á framfæri.
- Þegar rökstudd umsókn um leyfi liggur fyrir frá nemanda eða forráðamönnum hans, að fengnu leyfi skólameistara.