Frávik frá skólasóknarreglu
Skólanámskrá FVA
Frávik frá skólasóknarreglu
Nemendur geta sótt um frávik frá skólasóknarreglu í byrjun annar. Umsókn þarf að vera rökstudd. Um frávik frá skólasóknarreglu gildir:
- Nemendur sem hafa fengið samþykkt frávik frá skólasóknarreglu geta þurft að mæta í allar kennslustundir í sumum áföngum (einkum verklegum og próflausum) sem ekki er hægt að ljúka nema með reglulegri tímasókn.
- Skólinn gerir þá kröfu að nemandi með frávik frá skólasóknarreglu sæki kennslustundir samkvæmt samkomulagi. Nemandinn á ekki rétt á kennslu eða leiðsögn utan kennslustunda umfram aðra nemendur.
- Nemendur með frávik frá skólasóknarreglu geta ekki stundað nám í áföngum á fyrsta þrepi.
- Hafi nemandi fallið í einhverjum áföngum á síðustu önn sinni í skóla getur hann ekki fengið frávik frá skólasóknarreglu í fleiri einingum en hann lauk með fullnægjandi árangri á þeirri önn.
- Að jafnaði skal við það miðað að nemandi sem fær frávik frá skólasóknarreglu sé orðinn a.m.k. 20 ára, hafi stundað nám með góðum árangri og tilgreini í umsókn sinni ástæður þess að hann geti ekki haldið áfram námi án þess að sleppa einhverjum kennslustundum.
- Endurnýja þarf umsókn um frávik frá skólasóknarreglu í upphafi hverrar annar. Umsóknin er afgreidd í samráði við kennara fyrir lok annarrar kennsluviku.
- Þess er vænst að nemendur í fullu námi hafi samráð við kennara sína áður en umsókn þeirra um frávik frá skólasóknarreglu er afgreidd.
- Nemandi með frávik frá skólasóknarreglu fær hvorki skólasóknareinkunn né einingar fyrir skólasókn (en skráð er U í stað einkunnar í námsferil).