fbpx

Ferilbók

Skólanámskrá FVA

Starfsþjálfun/vinnustaðanám hjá nemendum í verk- og starfsnámi fer fram á vinnustað. Í námssamningi er kveðið á um inntak og fyrirkomulag þeirrar starfsþjálfunar sem fara skal fram. Samkvæmt reglugerð nr. 180/2021 um vinnustaðanám skal framvinda náms og námsferill nemanda á vinnustað skráð í rafræna ferilbók í INNU. Þar er hæfni nemanda staðfest af umsýsluaðila skóla auk tilsjónaraðila/leiðbeinanda fyrirtækis og/eða stofnunar eftir því sem við á. Rafræn ferilbók er í umsjón Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Námssamningur er vistaður í ferilbók nemandans. Starfsþjálfun telst lokið þegar nemandi hefur, að mati tilsjónaraðila /leiðbeinanda fyrirtækis og/eða stofnunar og umsýsluaðila skóla, náð öllum hæfniþáttum í ferilbók og þar með þeirri hæfni sem tilskilin er. Starfsþjálfun getur því verið mislöng hjá nemendum en þó aldrei lengri en skipulagt nám kveður á um. Skilyrði fyrir brautskráningu af verk- og starfsnámsbrautum er að nemandi hafi lokið bæði námi í skóla og starfsþjálfun.